Hélt að farið hefði verið að tilmælum um launalækkun

Jóhanna Sigurðardóttir og fleiri ráðherrar á Alþingi.
Jóhanna Sigurðardóttir og fleiri ráðherrar á Alþingi.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að hún hafi ekki vitað annað en að farið væri eftir þeim tilmælum, sem voru send ráðuneytum og stofnunum árið  2009, að öll laun í stjórnsýslunni yfir 400 þúsund krónur yrðu lækkuð.

Sömuleiðis sagðist Jóhanna ekki hafa vitað annað en að samræmi væri milli ráðuneyta og ríkisstofnana í þessum aðgerðum. Væri það ekki raunin sé það bagalegt og ekki í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Full ástæða sé til að skoða hvaða skýringar væru á þessu og hvernig þetta hafi verið framkvæmt. 

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vísaði til könnunar Ríkisendurskoðunar, sem hefði leitt í ljós að fjölmargar ríkisstofnanir urðu ekki við tilmælum ríkisstjórnarinnar. Hafi Ríkisendurskoðun gagnrýnt þessa málsmeðferð harkalega.  

Þá sagði Höskuldur, að í uppgjöri ríkissjóðs fyrir apríl komi í ljós, að laun framkvæmdavaldsins séu komin 1,5 milljarða fram úr áætlun. Þetta séu gríðarháar tölur. Spurði Höskuldur hvort Jóhanna gæti útskýrt þetta launaskrið innan stjórnsýslunnar og hvort hún myndi efla Alþingi til móts við það sem framkvæmdavaldið virtist vera að taka sér sjálft.  

Jóhanna sagði að full ástæða væri að skoða þetta og leita skýringa á því hvort aðgerðirnar hafi ekki verið samræmdar og gengið yfir allt opinbera kerfið, eins og til stóð, og hverjar séu helstu skýringar á þessu launaskriðinu.

Höskuldur sagði ansi bagalegt, ef ekki skammar, að forsætisráðherra skuli koma af fjöllum um það hvernig tekist hefði til með framkvæmd eigin tilmæla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert