Lögregla í Haugasundi á suðvesturströnd Noregs varð að skakka leikinn þegar tveir Íslendingar lentu í slagsmálum í bænum í nótt. Að sögn Radio Haugaland var klukkan 2:50 að norskum tíma þegar lögreglan var kölluð út.
Fram kemur á vef útvarpsstöðvarinnar, að lögreglan hafi flutt mennina, sem eru á þrítugsaldri, í fangelsi. Þeir hafi báðir verið drukknir og verði nú ákærði fyrir óspektir og ölvun á almannafæri.