Vekur mikla athygli í Japan

Aðstandendur myndarinnar á blaðamannafundi í Tókíó í dag.
Aðstandendur myndarinnar á blaðamannafundi í Tókíó í dag. mbl.is

Bíómyndin Reykjavík Whale Watching Massacre var frumsýnd í Tókýó í Japan í dag. Japanska leikkonan Nae sem leikur stórt hlutverk í myndinni er mjög þekkt í heimalandi sínu og því hefur myndin fengið þó nokkra athygli þar í landi.

Mbl.is náði tali af Júlíusi Kemp, leikstjóra Reykjavík Whale Watching Massacre, eftir frumsýninguna. Níu klukkustunda tímamunur er á milli landanna þannig að það er komið fram yfir miðnætti í Japan núna, kominn sunnudagur hjá þeim.

„Frumsýningin tókst mjög vel og maður bíður spenntur eftir aðsóknartölum og gagnrýni á hana,“ segir Júlíus Kemp. „Það var frumsýnt á tveimur stöðum í borginni, í Ginzahverfinu og Shinjuku. Það var stór blaðamannafundur, um sextíu manns á honum og allir blaðamennirnir á staðnum voru búnir að sjá myndina og kynna sér flest um gerð hennar en það er ekki alltaf þannig. Hvalveiðar er heitt efni hér í Japan og það var mikið spurt um þær og okkar persónulegu skoðanir á þeim. Manni heyrðist á þeim að þeim þætti við hafa verið sanngjarnir í myndinni hvað veiðarnar varðaði. Við hefðum hvorki verið að upphefja hvalaskoðun né hvalveiðar. En þessi mikla athygli sem við njótum hér er Nae að þakka. Hún er mjög fræg leikkona hér í landi,“ segir Júlíus.

Aðspurður um það hvernig hann hafi það í Japan og hvort eitthvað hafi komið honum á óvart í landinu segir hann að sér hafi brugðið svolítið í dag þegar það kom lítill jarðskjálfti og hann staddur í háhýsi. En honum var sagt að svona litlir skjálftar væru daglegt brauð í Tókýó.

„Svo hefur það komið mér á óvart að enskukunnáttan er ekki eins almenn og ég hafði búist við,“ segir Júlíus sem er strax kominn uppá hótelherbergi á frumsýningarkvöldinu þótt nóttin sé bara rétt byrjuð í Japan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert