Karlmaður um þrítugt slasaðist á mótorkross hjóli á æfingasvæði á Selfossi rétt fyrir klukkan fimm í dag.
Maðurinn var þar við æfingar á hjólinu ásamt félögum sínum, hann hafði verið að reyna stökk sem mistókst og lenti hann á hjólinu.
Maðurinn kenndi sér eymsla eftir slysið og var í framhaldinu fluttur með sjúkrabíl á heilsugæslustöðina á Selfossi.