Orkuveita Reykjavíkur hefur auglýst til sölu jarðirnar Hvamm og Hvammsvík í Hvalfirði. Jarðirnar eru um 607 hektarar að stærð og eru þær seldar saman með öllum mannvirkjum, ræktun og öðru fylgifé.
Stjórn OR samþykkti söluna á fundi sínum 15. apríl síðastliðinn. Fram kemur á vef OR að hún sé hluti þeirrar umfangsmiklu aðgerðaáætlunar fyrirtækisins og eigenda þess, sem nú sé unnið eftir.
Frestur til að skila tilboðum rennur út á hádegi 17. ágúst.