Allsherjarnefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að 50 einstaklingar fái íslenskan ríkisborgararétt.
Umræddir einstaklingar eru frá tuttugu og sex löndum. Þeirra á meðal er Jussanam Da Silva, sem er frá Brasilíu, og komst í fréttir hér þegar átti að vísa henni úr landi á síðasta ári. Fram kom hins vegar í maí, að hún hefði fengið varanlegt dvalarleyfi hér á landi.