Sáttafundi í kjaradeilu Flugvirkjafélagsins og Icelandair var að ljúka og boðað hefur verið til fundar næsta þriðjudag.
Samkvæmt upplýsingum frá Guðjóni Arngrímssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair, miðar deilunni í samkomulagsátt.
Flugvirkjar hafa lagt niður vinnu þrjá undanfarna morgna frá klukkan 6 til 10.