Í Vík í Mýrdal er nú verið að byggja svonefndan sandfangara, 276 m langan brimvarnargarð, hornrétt út frá fjörunni neðan við kauptúnið Vík.
Fram kemur á vef Siglingastofnunar, að hlutverk garðsins sé, eins og nafnið gefi til kynna, að fanga sand og hamla þannig landbroti í Víkurfjöru.
Samið var við verktakafélagið Glaum í Garðabæ sem bauð 119.721.600 kr. eða 68% af kostnaðaráætlun.
Grjótið í sandfangarann er sótt um 25 km leið úr námu á Eystri-Sólheimaheiði. Samkvæmt útboði á verkinu að ljúka eigi síðar en 30. september.