Gleðigangan sem verið hefur hápunktur Hinsegin daga í Reykjavík undanfarin ár fer ekki niður Laugaveg í ár eins og venjan hefur verið heldur eftir Sóleyjargötu frá BSÍ.
Í dagskrá hátíðarinnar kemur fram að safnast verði saman á Vatnsmýrarvegi, austan BSÍ laugardaginn 6. ágúst klukkan 12:00. Þaðan verði haldið klukkan 14:00 í gleðigöngu eftir Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og fram hjá Arnarhóli.