Nóttin var með rólegra móti hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins þótt margt fólk hafi verið í bænum að skemmta sér. Skemmtistöðum var lokað klukkan þrjú í nótt því í dag er hvítasunnudagur.
Tveir ökumenn voru teknir fyrir meintan ölvunarakstur og aðrir tveir fyrir meintan fíkniefnaakstur. Þá kom upp eitt minniháttar fíkniefnamál í umdæmi lögreglunnar. Þrír fengu gistingu í fangaklefum vegna ölvunar.