Sumarið virðist loksins komið til höfuðborgarinnar eftir frekar brösuga byrjun. Voru útikaffihús á Austurvelli þétt setin af borgarbúum sem voru sólinni fegnir og gæddu sér á veitingum í blíðunni.
Á morgun er hins vegar spáð rigningu en þó er hægt að halda í vonina um nú sé loksins komin betri tíð með blóm í haga.