Vélarbilun í flugvél Icelandair

mbl.is / Sigurður Bogi

Flugvél frá Icelandair sem var á leið frá Billund í Danmörku og til Íslands varð að snúa við í morgun vegna vélabilunar. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, er um minniháttar bilun að ræða.

Guðjón segir að farþegum flugvélarinnar hafi verið komið á hótel á meðan viðgerð fer fram á vélinni. Verði töf á viðgerðinni segir hann að gerðar hafi verið ráðstafanir til þess að koma þeim til Kaupmannahafnar og þaðan með flugi til Íslands í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert