Arion banki endurreiknar gengistryggð lán

mbl.is/Ómar

Arion banki mun endurreikna öll þau lán sem kveða á um sömu efnisatriði og Hæstiréttur hefur í nýlegum dómum sínum talið ólögmæt. Arion banki stefnir að því að ljúka endurútreikningi í október en niðurstaðan verður kynnt lánþegum eins fljótt og auðið er.  Um 2.000 lán er að ræða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Arion banki segir að í dómi Hæstaréttar megi ráða að hluti erlendra lána bankans til fyrirtækja og einstaklinga teljist vera gengistryggð lán í íslenskum krónum og því að hluta til ólögmæt samkvæmt íslenskum lögum.

„Þrátt fyrir að ekki hafi fallið dómar í Hæstarétti um lánasamninga Arion banka þá telur bankinn að nýlegir dómar hafi fordæmisgildi um hluta lánasafns bankans. Arion banki mun endurreikna öll þau lán sem kveða á um sömu efnisatriði og Hæstiréttur hefur í nýlegum dómum sínum talið ólögmæt. Um tvö þúsund lán er að ræða. Arion banki stefnir að því að ljúka endurútreikningi í október en niðurstaðan verður kynnt lánþegum eins fljótt og auðið er.  

Fram að þeim tíma býður Arion banki viðskiptavinum sínum að greiða áfram af umræddum lánum með óbreyttum hætti eða að greiða 10.000 kr. af hverri milljón af upphaflegum höfuðstól,“ segir í tilkynningu.

Þar segir að samkvæmt dómum Hæstaréttar virðist lán með svokölluðu „jafnvirðisorðalagi“, þar sem útgreiðsla láns og greiðsla afborgana sem og vaxta sé í íslenskum krónum, vera gengistryggð lán í íslenskum krónum og þar með að hluta til ólögmæt. Hins vegar teljist lán, þar sem fjárhæð hinnar erlendu myntar sé tiltekin og útgreiðsla lánsfjárhæðar og greiðsla afborgana og vaxta hafi verið gerð í erlendri mynt, vera lán í erlendri mynt og þar með lögmæt erlend lán.

„Óvissa ríkir um lögmæti annarra lána þar sem orðalag lánasamningsins og framkvæmd lánveitingarinnar er með öðrum hætti. Arion banki mun áfram leitast við að greiða úr málum hlutaðeigandi einstaklinga og fyrirtækja. Um er að ræða á bilinu tvö til þrjú hundruð lán. Arion banki mun beita sér fyrir því að eyða óvissu varðandi lögmæti þeirra lána og leggja sitt af mörkum til að hraða málum í gegnum dómskerfið eins og frekast er unnt,“ segir bankinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert