Safnar áheitum fyrir Grensásdeild

Hávarður Tryggvason
Hávarður Tryggvason mbl.is

Hávarður Tryggvason „Ísfirðingur“  leggur af stað þann 22. júní upp í hjólreiðaferð um Vestfirði til styrktar Grensásdeild.  Farinn verður rangsælis hringur um þjóðvegi „neðri kjálka“ Vestfjarða , alls  tæplega  700 km vegalengd og um 5000 metrar í hækkanir.

Lagt verður af stað frá Ísafirði  og hjólaðir vesturfirðirnir svokölluðu og komið við í flestum þorpum á leiðinni. Síðan er haldið yfir á Barðaströnd og allir suðurfirðir þræddir allt að Gilsfirði en þar er farið yfir „hálsinn“ á Vestfjörðunum yfir Steinadalsheiði ofan í Kollafjörð við Húnaflóa.

Þá er haldið til Hólmavíkur og yfir Steingrímsfjarðarheiði niður í Ísafjarðardjúp og sem leið liggur alla leið til baka til Ísafjarðar.  Áætlað er að ferðin taki 7 – 10 daga. Þórunn María Jónsdóttir, eiginkona Hávarðar, ásamt tveimur börnum þeirra mun „trússa“ ferðina, segir í tilkynningu.

Ferðina fer Hávarður til að fagna 50 ára afmæli  sínu  og til að vekja athygli á átakinu Á rás fyrir Grensás sem er yfirskrift söfnunarátaks sem Edda Heiðrún Backman hefur staðið  fyrir undir merkjum Hollvina Grensásdeildar, en markmið þeirra er að safna 500 miljónum króna til nýrrar 1.500 fermetra viðbyggingar við Grensásdeild sem mun hýsa sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og fleira.  

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert