Undirbúningur fyrir hátíðina á Hrafnseyri við Arnarfjörð í tilefni þess að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta, er á lokastigi. Í dag var verið að setja upp tjöld sem hýsa veitingasölu og markað.
Ekki hjálpaði strekkingurinn Sigmundi Þórðarsyni
húsasmíðameistara á Þingeyri og félögum hans. Á meðan þeir skruppu í mat
komst vindurinn í í pizzutjaldið og þótt strákarnir væru snarir í
snúningum náðu þeir ekki að halda í við náttúruöflin og fauk það á
hliðina. Þeir létu það ekki á sig fá og héldu áfram
sínu verki.
Á sama tíma er verið að leggja lokahönd á endurbætur á húsnæði Safns
Jóns Sigurðssonar og uppsetningu nýrrar sýningar um líf hans og störf.
Sýningin verður opnuð á hátíðinni á Hrafnseyri, 17. júní, á fæðingardegi Jóns.