Brot 111 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, við Hnoðraholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 863 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tólf óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 115, samkvæmt frétt á vef lögreglunnar.