Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Jón Gunnarsson og Einar K. Guðfinnsson og þingmaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, hafa óskað eftir því við Lilju Rafney Magnúsdóttur, formann landbúnaðar- og sjávarútvegsnefndar að boðað verði til fundar í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd vegna skýrslu hagfræðinga um frumvörp sjávarútvegsráðherra.
Óskað er eftir að höfundar skýrslunnar verði boðaðir á fund nefndarinnar.