Róleg nótt í höfuðborginni

mbl.is/Júlíus

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fengu átta að gista í fangageymslum í nótt auk þess sem tveir ökumenn voru staðnir að því að aka undir áhrifum. Lítið var um tilkynningar vegna líkamsárása.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu taldi nóttina vera heldur tíðindalausa þar sem um aðfararnótt sunnudags er að ræða. Hins vegar er helgin löng og margir virðast hafa lagt leið sína út úr bænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert