Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, er ánægð með að heyra niðurstöður könnunar Capacent, sem leiða í ljós að hún njóti langmest trausts á meðal borgarbúa.
„Þetta er ánægjuleg staðfesting á að fólk sé sátt við okkar störf. Við höfum lagt mikla áherslu á að vera í uppbyggilegri og málefnalegri stjórnarandstöðu og það er greinilegt að íbúar kunna að meta það.“
50,5% borgarbúa treysta henni best samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar og er það meira en allir hinir oddvitarnir í Reykjavík til samans.
Könnunin var unnin af Capacent 26. maí - 21. júní.