Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, nýtur langmest trausts oddvita stjórnmálaflokkanna í Reykjavík samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Capacent. 50,5% borgarbúa treysta henni best og er það meira en allir hinir oddvitarnir í Reykjavík til samans.
Könnunin var unnin af Capacent 26. maí - 21. júní.
Spurt var „Hvaða oddvita í borgarstjórn treystir þú best?" og skiptust svörin á eftirfarandi hátt:
50,5% Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
17% Jóni Gnarr
25,4% Degi B. Eggertssyni
7,1% Sóleyju Tómasdóttur
Einnig var spurt um fylgi flokkana og var Sjálfstæðisflokkurinn þar með mesta fylgið, 44,5%.
Spurt var: „Ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa/líklegast kjósa?“ og skiptust svörin á eftirfarandi hátt:
Sjálfstæðisflokkur 44,5 %
Besti flokkurinn 17,1%
Samfylkingin 21,7%
Vinstri græn 8,7%
Framsókn 4,1%
Annan flokk 3,8%