Rafmagnslaust varð í hluta Grafarvogs, Mosfellsbæjar og á Kjalarnesi laust eftir 14.30 í dag vegna bilunar í spenni í aðveitustöð við Korpu. Rafmagn var komið aftur á 5 mínútum síðar. Verið er að kanna orsakir bilunarinnar, að því er segir í tilkynningu.