Furðuskepna kom í
síðasta troll Múlabergs á rækjumiðunum, nánar tiltekið á Strandagrunni,
norðvestan við Hornbankann (67°00 N og 20°00 V), á 170-180 faðma dýpi.
Kristján Elís Bjarnason skipstjóri kannaðist ekki við fenginn, að því er fram kemur á vefnum Siglfirðingur.
„Þetta er krabbadýr af
ættbálki jafnfætla (Isopoda) sem kemur stundum inn á borð hjá okkur,
stundum úr botnsleðum, rækjutrolli og stundum í fiskmögum, t.d.
grálúðu,” sagði Karl Gunnarsson sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun þegar
Siglfirðingur.is leitaði til hans í gær um upplýsingar. Einnig hefur
það fundist í maga þorsks sem og fuðriskils sem er af marhnútaætt og
hefur veiðst norður af landinu. „Það er sérstakt og eftirtektarvert við
krabbadýrið að þegar afkvæmin eru klakin, hanga þau á fálmurunum og
þroskast þar.”
Umrætt kvikindi, sem lítið er vitað um en hefur til þessa fundist á 9-1.146 metra dýpi, á norðurhveli jarðar, einkum í köldum sjó, hefur ekki enn fengið íslenskt nafn en heitir á latínu Arcturus baffinii.
Sjá frétt í Siglfirðingi.