Lögregla vill vara við hættu vegna nýs lóns sem myndast hefur við Gígjökul á leiðinni inn í Þórsmörk.
Menn sem nýlega voru þarna á ferð tóku eftir að myndast hefur lítið lón við jökulsporðinn. Nú er talsverð umferð þarna og hvetur lögreglan á Hvolsvelli menn sem fara þarna upp að jökli að fara mjög varlega. Þetta á reyndar við um allt Lónstæðið gamla, segir í tilkynningu frá lögreglunni.
„Þetta er meira og minna ís hulinn þunnu malarlagi. Ef menn fara fram á bakka „nýja lónsins“ og falla í vatnið þá er glæra ís neðan við vatnsborðið. Litlar líkur er á því að maður nái að krafla sig upp úr slíku nema vopnaður broddum og ísöxi. Menn eru venjulega ekki vopnaðir slíku.
Vatnið er venjulega mjög kalt á svona stöðum. Þetta er því dauðans alvara. Að hafa langan spotta eða línu er það sem helst er til bjargar ef illa fer. Best er þó að koma sér ekki í vandræði.
Lögreglan á Hvolsvelli hvetur því fólk að fara að með öllu með gát.
Einnig ítrekar lögreglan að utanvegaakstur er með öllu óheimill," segir í tilkynningu frá lögreglu.