Lögreglan fylgdist með umferð og lagningum ökutækja við KR völlinn í gærkvöldi á meðan leikur KR og FH í bikarkeppni karla fór fram.
Var umferðin til mikillar fyrirmyndar og einungis var sett stöðubrotsgjald á eitt ökutæki sem lagt hafði verið upp á grasi, segir á vef lögreglunnar.