Mjög mikið er kvartað til Neytendasamtakanna þessa dagana vegna ófullnægjandi verðmerkinga á kjötvörum og ljóst að víða er pottur brotinn. Þetta gerist í kjölfar þess að forverðmerkingar á kjötvörum voru bannaðar, þ.e. vörurnar mega ekki koma verðmerktar í verslanir frá kjötiðnaðarstöðvum heldur eiga verslanir sjálfar að sjá um að verðmerkja, segir á vef Neytendasamtakanna.
„Að mati Neytendasamtakanna er mjög alvarlegt hversu illa gengur að koma þessum verðmerkingamálum í gott horf. Neytendur eiga rétt á að sjá bæði kílóverð og einingaverð á öllum vörum þar með talið kjötvörum.
Þar sem einingaverð vantar á allar kjötvörur sem ekki eru staðlaðar að þyngd hafa verið settir upp þar til gerðir skannar sem sýna hversu mikið hver vara kostar. Margir neytendur hafa kvartað undan þessu fyrirkomulagi og þykir óþægilegt að geta ekki séð á einfaldan hátt hvert endanlegt verð er," segir á vef samtakanna.