Alls bárust 154 kröfur í þrotabú Eyrarodda hf. á Flateyri og er heildarfjárhæð krafnanna rúmar 275 milljónir króna.
„Þetta er allt að skýrast og 154 kröfulýsingar hafa verið lagðar fram en ekki eru allar kröfur samþykktar og veðkröfur eru ekki inni í þessari talningu,“ segir Friðbjörn E. Garðarsson, skiptastjóri þrotabúsins.
Samþykktar kröfur
nema rúmum 52 milljónum króna. Friðbjörn segir að vonir standi til að
málin muni leysast í vikunni. Skiptafundur verður haldinn í dag sem
opinn er öllum kröfuhöfum, samkvæmt frétt á vef Bæjarins besta.
Héraðsdómur Vestfjarða úrskurðaði
Eyrarodda gjaldþrota í janúar eftir að stjórn fyrirtækisins og
umsjónarmaður nauðasamninga félagsins lögðu fram beiðni þess efnis fyrir
dómara.