Varað við grunsamlegum heimsóknum

Grindavík
Grindavík mbl.is/RAX

Grindvíkingar eru á vef sveitarfélagsins varaðir við grunsamlegum heimsóknum. Eru íbúar beðnir um að hafa varan á.

„ Maður af erlendum uppruna bankaði upp á í nokkrum húsum síðasta föstudags- og laugardagskvöld og bauðst til þess að mála þakið hjá viðkomandi. Grunur leikur á að maðurinn hafi fyrst og fremst verið að kanna hvort viðkomandi hús hafi verið mannlaus.

Grindvíkingar eru hvattir til þess að láta lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir og læsa húsum sínum, hvort sem fólk er heima eða heiman," segir á vef Grindavíkur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert