72 milljónum úthlutað úr Forvarnasjóði

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra. mbl.is/Ómar

Velferðarráðherra úthlutaði í gær styrkjum úr Forvarnasjóði, samtals 72 milljónum króna, til fjölbreyttra verkefna og rannsókna á sviði forvarna gegn áfengis- og vímuefnaneyslu og bættrar lýðheilsu.

Þetta er í síðasta sinn sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum. 

Alls voru veittir styrkir til 102 verkefna en umsækjendur voru tæplega 170. Hæstu styrkina hlutu Fræðslumiðstöð um forvarnir, 5 milljónir króna, Ungmennafélag Íslands fékk 4 milljónir, Háskólinn á Akureyri 3,5 milljónir, Rannsóknir og greining 3 milljónir og Vímulaus æska 3 milljónir króna.

Nánari upplýsingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert