Veðurstofan segir að norðan strekkingur sé um vestan- og norðvestanvert landið. Vindhviður við fjöll muni víða fara yfir 20 metra á sekúndu. Er ferðafólki með eftirvagna bent á að fylgjast vel með veðurathugunum og veðurspám.
Spáin er svohljóðandi:
Norðan og norðaustan 5-15 metrar á sekúndu. Rigning eða súld um
landið norðan og austanvert en skýjað með köflum syðra. Dregur smám
saman úr vindi í dag. Heldur hægari norðan og norðvestanátt á morgun,
úrkomuminna norðaustantil. skýjað með köflum vestantil, en bjartviðri á
Suðurlandi. Hiti 4 til 16 stig, hlýjast suðvestantil.