Lést í Kverkfjöllum

Frá Kverkfjöllum.
Frá Kverkfjöllum. mbl.is/Friðþjófur

Maðurinn sem lést síðdegis í gær við íshellinn í Kverkfjöllum hét Jesus Martinez Barja, fæddur árið 1959, og var því 52 ára. Hann var spænskur ríkisborgari sem bjó í Hafnafirði og lætur eftir sig þrjú börn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði fer með rannsókn málsins. Maðurinn var að skoða hellinn ásamt sex samlöndum sínum, en þá sakaði ekki er íshröngl féll úr hellinum. Var hann fararstjóri hópsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert