Loka í Kauptúni og segja upp 20 manns

Fjölskyldan sem stofnaði BYKO hefur alfarið tekið við stjórnartaumunum á …
Fjölskyldan sem stofnaði BYKO hefur alfarið tekið við stjórnartaumunum á ný. mbl.is/Kristinn

BYKO hefur ákveðið að loka verslun sinni í Kauptúni í Garðabæ 30. september nk. og hefur yfir 20 starfsmönnum verslunarinnar verið sagt upp vegna þessa. Þá lætur Sigurður E. Ragnarsson, forstjóri BYKO, af störfum hjá félaginu og Guðmundur H. Jónsson tekur við.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Byko, sem send hefur verið fjölmiðlum. Guðmundur hefur verið  forstjóri Smáragarðs og í stjórn Norvíkur og dótturfélaga. Iðunn Jónsdóttir er stjórnarformaður BYKO.

„Um ástæður þessara aðgerða þarf vart að fjölyrða. Aðstæður í íslensku efnahagsumhverfi hafa í langan tíma verið slæmar með tilheyrandi samdrætti í verslun með byggingarvörur. Þá hafa samkeppnisaðstæður á þeim markaði gjörbreyst með eignarhaldi og afskriftum banka á skuldum og síðar yfirtöku lífeyrissjóða á einu þeirra fyrirtækja sem starfrækt er á þessu sviði. BYKO er því nauðugur sá kostur að rifa seglin og laga sig þannig að breyttum aðstæðum," segir í tilkynningunni.

„Sársaukafullar aðgerðir“

Þar er jafnframt haft eftir Jóni Helga Guðmundssyni, stjórnarformanni og forstjóra Norvíkur. Fjölskyldan, sem staðið hefur að rekstri BYKO allt frá upphafi árið 1962, hafi ákveðið að taka alfarið við stjórnartaumunum á nýjan leik.

„Þannig öxlum við sjálf þungann af bæði þessum aðgerðum og þeim breytingum sem nauðsynlegar kunna að verða á næstu mánuðum og misserum. Ég vil þakka Sigurði E. Ragnarssyni sérstaklega fyrir hans langa og heilladrjúga starf fyrir BYKO, en hann hverfur nú til annarra starfa á vegum Norvíkursamstæðunnar," segir Jón Helgi í tilkynningunni.

 

Jón Helgi Guðmundsson.
Jón Helgi Guðmundsson. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert