Stjórnlagaráð afgreiddi mannréttindakafla A-nefndar inn í áfangaskjal ráðsins á 14. ráðsfundi. Kaflinn telur alls um þrjátíu ákvæði en í núverandi stjórnarskrá eru 15 ákvæði um mannréttindamál.
Fram kemur í tilkynnigu að ýmsar nýjungar komi fyrir í kaflanum. Þar sé m.a. lagt til ákvæði um mannlega reisn, jafnræðisreglan sé mun ítarlegri en í núverandi stjórnarskrá, kveðið sé á um að allir skuli njóta mannhelgi og lagt sé til ítarlegt ákvæði um upplýsingaskyldu stjórnsýslu.
Þá er lagt til nýtt ákvæði um frelsi fjölmiðla. Ný grein kemur fram í ákvæði um tjáningarfrelsi en þar er kveðið á um að stjórnvöld skuli tryggja aðstæður til opinnar og upplýstrar umræðu, svo sem óheftan aðgang að netinu og upplýsingatækni.
Kveðið er á um frelsi menningar og mennta, um menningarleg verðmæti og að öllum beri að virða mannréttindareglur sem bindandi eru fyrir ríkið að þjóðarrétti.
Í ákvæðum kaflans er horfið frá málfræðilegu karlkyni í texta og notast við jafnræðisreglu, þ.e. í stað þess að ákvæði hefjist á „allir skulu“ hefjast þau á „öll erum við“.
Í kaflanum sem lagður var fyrir fundinn voru tvö ákvæði sett fram til kynningar. Í öðru þeirra er kveðið á um að stjórnvöldum beri að tryggja síaukna vernd mannréttinda og í hinu er lagður fram auka valkostur um þjóðkirkjuna.