Þriggja ára birna

Ísbjörninn á Hornströndum 2. maí 2011.
Ísbjörninn á Hornströndum 2. maí 2011. mynd/Landhelgisgæslan

Hvítabjörninn sem var felldur í Rekavík á Hornströndum 2. maí sl. var ung birna. Dýrafræðingur á Tilraunastöðinni á Keldum segir að hún hafi verið 95 kílóa og 173 cm á hæð. Birnan var ekki smituð af tríkínum en í maga fannst sníkjuþráðormur sem oft finnst í maga til dæmis kampsels og hringanóra.

Karl Skírnisson dýrafræðingur segir í tilkynningu að mikilvægt sé að hindra að tríkínur nái fótfestu hér á landi, en Ísland sé eitt fárra landa þar sem þessir sníkjuormar, sem reynst geti mönnum lífshættulegir, sé ekki landlægir.

Karli var fengið að sjá um rannsóknir á dýrinu. Hún var gerð í samvinnu við Ólöfu Guðrúnu Sigurðardóttur, dýralækni og dýrameinafræðing á Keldum og Þorvald Björnsson, hamskera Náttúrufræðistofnunar Íslands.  

Hann segir að aldursgreining birnunnar, sem byggi á talningu árhringja á tannrótum, sýndi að birnan var ríflega þriggja ára (talin fædd í janúar 2008).

„Hún var við það að verða kynþroska en einungis 95 kílóa þung og 173 cm löng. Birnan er talin hafa lotið forsjár móður fram á seinni hluta vetrar 2010 en eftir það hafi hún þurft að finna fótum sínum forráð ein og óstudd,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert