172 fyrirtæki í þrot

mbl.is/Ómar

Í maí 2011 voru 172 fyr­ir­tæki tek­in til gjaldþrota­skipta sam­an­borið við 96 fyr­ir­tæki í maí 2010, sem jafn­gild­ir um 79% fjölg­un á milli ára. Eft­ir bálk­um at­vinnu­greina voru flest gjaldþrot í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð. Fyrstu 5 mánuði árs­ins 2011 er fjöldi gjaldþrota 699 sem er um 53% aukn­ing frá sama tíma­bili árið 2010 þegar 456 fyr­ir­tæki voru tek­in til gjaldþrota­skipta, að því er fram kem­ur á vef Hag­stofu Íslands.

Í maí 2011 voru skráð 108 ný einka­hluta­fé­lög (ehf) sam­an­borið við 161 einka­hluta­fé­lög í maí 2010, sem jafn­gild­ir um 33% fækk­un á milli ára. Eft­ir bálk­um at­vinnu­greina voru flest einka­hluta­fé­lög skráð í fast­eignaviðskipti. Heild­ar­fjöldi ný­skráðra einka­hluta­fé­laga er 696 fyrstu 5 mánuði árs­ins og hef­ur ný­skrán­ing­um fækkað um 7% frá sama tíma­bili árið 2010 þegar 749 ný einka­hluta­fé­lög voru skráð.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert