Samtök hernaðarandstæðinga boða til mótmæla við Öskju, náttúrufræðihús Háskóla Íslands, í Vatnsmýrinni á morgun.
Á morgun mun Claudio Bisogniero, varaframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins halda erindi í Öskju klukkan 12 á hádegi. SHA hvetja andstæðinga bandalagsins til að mæta fyrir utan Öskju ekki seinna en 11:40 til að mótmæla, segir í tilkynningu.