Geta keypt meira

Reuters

Ferðamenn geta nú keypt meira magn af bjór í fríhöfninni en áður eftir að Alþingi samþykkti frumvarp til breytinga á tollalögum 21. júní.

Nú mega ferðamenn hafa eftirfarandi með sér tollfrjálst af áfengi.

  • Einn lítra af sterku áfengi, einn lítra af léttvíni og sex lítra af bjór.
  • Þrjá lítra af léttvíni og sex lítra af bjór.
  • Einn lítra af sterku áfengi og níu lítra af bjór.
  • Einn og hálfan lítra af léttvíni og níu lítra af bjór.
  • Tólf lítra af bjór.

Þá mega ferðamenn hafa 200 vindlinga eða 250 gr. af öðru tóbaki með sér tollfrjálst.

Nánar hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert