Meirihluti landsmanna vill draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem Capacent gerði fyrir Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum.
Samtals eru 51% hlynnt því að umsóknin, sem send var í júlí árið 2009, verði dregin til baka á meðan 38,5% eru því andvíg. 10,5% tóku ekki afstöðu til spurningarinnar.
Spurt var: „Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú að Ísland dragi til baka umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu?“ Könnunin var gerð dagana 16. til 23. júní og var fjöldi svarenda 820.