Ræddu aðgerðir í Líbíu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Claudio Bisgogniero, varaframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Claudio Bisgogniero, varaframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Claudio Bisgogniero, varaframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, sem staddur er hér á landi. Á fundinum ræddu þeir endurskoðun á grundvallarstefnu bandalagsins og aðgerðir þess í Afganistan og Líbíu.

Utanríkisráðherra upplýsti Bisogniero um þingsályktun sem hann lagði nýverið fram um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland og ræddi mikilvægi norðurslóða í starfi Atlantshafsbandalagsins, ekki síst í tengslum við leit og björgun, samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu.

Bisogniero mun halda fyrirlestur um stöðu og störf NATO og áskoranir 21. aldarinnar í Öskju í Háskóla Íslands kl. 12 á morgun, föstudag.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert