30 færri stofnanir og ráðuneyti

Stjórnarráðið.
Stjórnarráðið. mbl.is / Hjörtur

Í yfirliti forsætisráðherra um sameiningar stofnana og ráðuneyta sem lagt
var fram í ríkisstjórn í morgun kemur fram að ráðuneytum og stofnunum
ríkisins hefur nú fækkað um 30. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Fækkunin nemur um 15% af heildarfjölda stofnana í byrjun árs 2010 en verði fjögur frumvörp innanríkisráðherra, sem eru nú til meðferðar á Alþingi, að lögum í september mun stofnunum fækka um 10 til viðbótar.

Í tilkynningunni segir jafnframt að nú hafi um helmingur af upphaflegum áætlunum um fækkun ráðuneyta og stofnana um 60-80 á árunum 2010-2012 gengið eftir.

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins um 30% - 40% á næstu tveimur til þremur árum, þ.e. fækkun um 60 til 80 stofnanir. Fækkunin ætti að koma fram á árunum 2010-2012 en í fjárlögum hefur verið fjallað um möguleika á fækkun stofnana sem byggjast á þessum áformum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert