Fylgst með umferð úr þyrlu

Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í umferðareftirlit í gærkvöldi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í umferðareftirlit í gærkvöldi. mbl.is

Lögreglan á Selfossi og Þyrludeild Landhelgisgæslunnar sinntu umferðareftirliti úr þyrlu í gærkvöldi. Farið var um Suður-, Vestur- og Norðurland og umferðinni fylgt eftir, samkvæmt frétt lögreglunnar.  

Almennt var ökuhraði hófstilltur og ekki tilefni til afskipta.  Einn ökumaður var þó kærður fyrir að aka á 141 km/klst hraða á Norðurlandsvegi skammt frá Hvammstanga.   Hann lét sér ekki segjast eftir þau afskipti og var stöðvaður skömmu síðar á 120 km/klst hraða af lögreglunni á Blönduósi. 

Fyrir fyrra brotið má hann búast við 130 þúsund króna sekt og þremur punktum í ökuferilsskrá en  seinna brotið varðar 50 þúsund króna sekt og einum punkti.   Töluverður fjöldi ökumanna var stöðvaður og látinn blása í áfengismæli en allir reyndust alsgáðir.  

Fleiri eftirlitsferðir eru ráðgerðar með þyrlu LHG um helgina en afar hentugt hefur reynst að nýta fastbundið æfingaflug flugmanna til eftirlits sem þessa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert