Tvær ferðir Herjólfs hafa verið felldar niður í dag vegna veðurs og sjólags í mynni Landeyjahafnar. Ekki er talið víst að veðrið batni fyrr en í nótt. Reynt verður að fara tvær ferðir í kvöld ef veður leyfir.
Slæm skilyrði hafa verið til siglinga Herjólfs í Landeyjahöfn í allan dag, að sögn Eimskips. „Vindur hefur farið allt upp í 22 m/s í hviðum, ölduhæð allt að 2,6 m á Bakkafjöruduflum og sjólag í hafnarkjaftinum hefur verið slæmt auk þess sem vesturfallið (sjávarstraumurinn meðfram ströndinni) er með mesta móti.
Herjólfur hefur náð því að fara tvær ferðir í dag en því miður hefur þurft að fella niður tvær ferðir vegna veðurs og sjólags í mynni hafnarinnar. Skipstjóri og stjórnendur Herjólfs fylgjast vel með veðrinu og hafa verið í sambandi við Veðurstofuna sem telur ekki öruggt að veðrið gangi niður fyrr en í nótt.
Ef skilyrði batna þegar kemur fram á kvöldið mun Herjólfur reyna að sigla tvær ferðir út daginn. Þeir farþegar sem áttu bókað far með skipinu frá Vestmannaeyjum kl.17:30 eru beðnir um að fylgjast vel með fréttum á www.herjolfur.is eða á Facebooksíðu Herjólfs.
Viðskiptavinir eru beðnir afsökunar á þeim óþægindum sem þessi röskun á ferðum Herjólfs hefur haft í för með sér.“