Farþegum fjölgar með skemmtiferðaskipum

Skemmtiferðaskipið Costa Pacifica við Skarfabryggju
Skemmtiferðaskipið Costa Pacifica við Skarfabryggju mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Farþegafjöldi með skemmtiferðaskipum til landsins hefur nærri þrefaldast á tíu árum. Þetta kemur fram í nýrri tölfræði sem Rannsóknamiðstöð ferðamála hefur tekið saman fyrir árið 2000 til loka árs 2010.

Byggt er á frumheimildum frá hverri höfn sem talin er fram.

Er horft til farþegafjölda með skipum til Reykjavíkur einungis, þar sem öll skip sem til landsins koma hafa viðkomu þar. Þessi sömu skip koma svo við á öðrum höfnum. Helst eru það Bandaríkjamenn, Bretar og Þjóðverjar sem koma með skipunum þótt aðeins sé um ferðafólk af öðru þjóðerni.

Sjá nánar hér 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert