Mælar í kringum Heklu hafa undanfarið sýnt „óvenjulegar hreyfingar“ í fjallinu. Almannavörnum hefur verið greint frá þessu, að því er fréttastofa RÚV greindi frá í kvöld.
Enn sem komið er þykir ekki ástæða til aðgerða en Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra var greint frá þessu í gær og almannavarnanefndir á Suðurlandi látnar vita.