Hraðakstur á Reykjanesbraut

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði för ökumanns á þrítugsaldri á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Mældist hann á 159 kílómetra hraða á klukkustund.

Kemur hann til með að greiða sekt upp á um 140 þúsund krónur fyrir glannaskapinn.

Þá var annar ökumaður tekinn á tæplega 130 km hraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Fær hann um sjötíuþúsund króna sekt fyrir að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert