Kostnaður við Sæfara eykst

Grímseyjarferjan Sæfari
Grímseyjarferjan Sæfari

Vegagerðin var í héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd til að greiða Vélsmiðju Orms og Víglundar 238.491 evru, tæpar fjörtíu milljónir króna, auk dráttarvaxta. Um er að ræða eftirstöðvar verksamningsgreiðslu og greiðslu samkvæmt reikningum fyrir viðbótarverk vegna endurbóta á Grímseyjarferjunnar Sæfara.

Á árinu 2003 skipaði samgönguráðherra starfshóp til að fjalla um samgöngur til Grímseyjar. Starfshópurinn taldi hagkvæmara að kaupa notaða ferju, lagfæra hana og breyta þannig að hún fullnægði öllum kröfum sem gerðar yrðu til farþega- og flutninga­skips á leiðinni milli Dalvíkur og Grímseyjar.

Ákveðið var því að kanna mögu­leika á kaupum á notuðu skipi. Haustið 2004 skoðuðu skipaverkfræðingar ferjuna Oleain Arann frá Írlandi. Í ljós kom að hún var í slæmu ástandi vegna skorts á viðhaldi.

Fyrsta kostnaðaráætlun sem gerð var af þessu tilefni var að fjárhæð 150.000.000 króna. Samþykkt var í ríkisstjórn að kaupa ferjuna að tillögu þáverandi samgönguráðherra.

Vegagerðin keypti ferjuna í nóvember 2005. Ferjan var smíðuð árið 1992 og hafði ekki verið í rekstri þegar kaupin voru gerð. Verkfræðistofunni Navis Fengur ehf. var falið að gera útboðslýsingu og kostnaðaráætlun vegna viðgerða og endurbóta á ferjunni og var það verk unnið af Agnari Erlingssyni og Karli Lúðvíkssyni skipaverkfræðingum.

Verkið var boðið út af Ríkis­kaupum á evrópska efnahagssvæðinu og bárust tilboð frá sex aðilum. Vélsmiðja Orms og Víglundar átti næstlægsta tilboðið og var samið við hana eftir að lægst­bjóðandi féll frá boði sínu.

Verksamningur var síðan undirritaður 6. apríl 2006 og var samnings­upphæðin 1.300.615,28 evrur.

Samkvæmt samningnum átti Vélsmiðja Orms og Víglundar að afhenda Vegagerðinni skipið ekki síðar en 1. maí 2006 og verklok áttu að vera 31. október sama ár. Eftirlit með endurbótum fyrir hönd Vegagerðarinnar hafði fyrrgreind verkfræðistofa, Navis Fengur ehf.

Snemma kom í ljós að umfang verksins var mun meira en fram kom í útboðs­lýsingu. Var þar aðallega um að ræða aukna endurnýjun á stáli í byrðing skipsins eftir að þykktarmæling á bolnum hafði verið gerð. Þá var þykkt á stáli í perustefni aukin um 4 mm umfram samning.

Vegna bolviðgerða var flotkví aðalstefnanda bundin við verkið lengur en áætlað var.  Forsvarsmenn vélsmiðjunnar lýstu því fyrir dómi að stálviðgerðir hafi verið erfiðari þar sem þær hefðu farið fram að vetri til vegna tafa við umfangsmeira verk en því hefði Vegagerðin ekki gert ráð fyrir við tilboðsgerð. Þá kom í ljós við skoðanir ýmissa rýma í skipinu að viðgerða og hreinsunar var þörf. Með aukaverkum jókst bæði verktími og kostnaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka