Landaverksmiðja í Grafarvogi

Bruggfata. Mynd úr myndasafni.
Bruggfata. Mynd úr myndasafni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti umfangsmikla landaframleiðslu í íbúð í Grafarvogi á áttunda tímanum í kvöld.  Í íbúðinni fannst talsvert magn af landa og gambra.

Að sögn lögreglunnar var framleitt í stórum stíl í lítilli blokkaríbúð í Reyrengi. Þar er fjögurra manna fjölskylda búsett, foreldrar og tvö börn.

Í íbúðinni fundust 500 - 600 lítrar af landa og gambra. „Það er ljóst að þetta er ekki til einkanota,“ sagði talsmaður lögreglunnar.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert