Björgunarsveitir á leið til ferðamanna

mbl.is/Jónas Erlendsson

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru nú á leið á sex staði við rætur hálendisins umhverfis Mýrdalsjökul til að upplýsa ferðamenn um stöðu mála við Mýrdalsjökul.

Þessir sex staðir eru Dómadalsleið, Landmannaleið, Öldufellsleið, Fjallabaksleið syðri við Gunnarsholt, í Skaftárdal við Gröf og við Þórólfsfell í Fljótshlíð.

Í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu segir að hóparnir hafi það hlutverk upplýsa ferðamenn um stöðu mála vegna jökulhlaupsins undan Mýrdalsjökli og vera til aðstoðar ef á þarfa að halda fyrir ferðamenn. Hóparnir verða á þessum stöðum þar til seint í kvöld og lengur ef þurfa þykir.


Fyrir eru fjórir hópar í Hálendisvakt björgunarsveita á Kjalvegi, í Landmannalaugum, við Öskju og á Sprengisandsvegi og má því segja að björgunarsveitir standi vaktina á tíu stöðum á hálendinu ferðamönnum til aðstoðar og upplýsinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert