Miklar sprungur eru í sigkötlum í Mýrdalsjöklum eins og sjá má á mynd sem áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar tók í morgun.
„Það eru merki um hlaup úr tveimur sigkötlum syðst í Kötluöskjunni og merki um hreyfingu víðar,“ sagði Einar Kjartansson jarðeðlisfræðingur í samtali við mbl.is fyrr í morgun.