Óvæntur endir á Íslandsferð

Þyrlan settist á veginn og flutti Frakkana til byggða.
Þyrlan settist á veginn og flutti Frakkana til byggða. mynd/Eric Langlois

Íslandsferð hóps Frakka, sem dvalið hefur hér á landi undanfarinn hálfa mánuð, tók óvænta stefnu í morgun en hópurinn hafði næturstað nálægt Hafursey austan við Múlakvísl.

„Það var allt með felldu þegar við fórum að sofa í gærkvöldi og það var lítið í ánni. Við fundum að vísu einkennilega lykt en veltum því ekki sérstaklega fyrir okkur," sagði Vidian Delabrosse, annar fararstjóri hópsins við mbl.is.

„Í morgun þegar við ætluðum að fá okkur morgunmat kom vörður til okkar og sagði að vegurinn væri farinn og við kæmumst ekki vesturyfir."

Delabrosse sagði að hópurinn hefði tekið saman föggur sínar og í þann mund kom þyrla Landhelgisgæslunnar og settist á veginn en flugmennirnir höfðu séð til Frakkanna. Ákveðið var að flytja þá til Víkur í tveimur ferðum og voru þeir í fjöldahjálparstöð Rauða krossins þar þegar mbl.is ræddi við þá. Þeir urðu að skilja bíla sína eftir austan við Múlakvísl en von var á bíl úr Reykjavík til að sækja þá.

Delabrosse og Marc Audreno og , hinn fararstjórinn, eru þaulvanir Íslandsferðum. Þeir sögðu, að ferðamennirnir hefðu ekki kippt sér sérstaklega upp við þessa lífsreynslu enda vissu þeir að búast mætti við hverju sem er á Íslandi. Þetta hefði í raun verið punkturinn yfir iið í ferðinni. Menn vissu einnig, að Íslendingar væru þaulvanir að fást við þær aðstæður sem gætu komið upp.

Hópurinn er hér í hálendisferð á vegum fyrirtækisins 66° Nord í Frakklandi. Farið var yfir Kjöl til Mývatns og síðan stóð til að fara Sprengisandsleið til baka en hún reyndist ekki fær. Frakkarnir halda heim á morgun.  

Franski hópurinn, sem fluttur var með þyrlu til Víkur.
Franski hópurinn, sem fluttur var með þyrlu til Víkur. mbl.is/GSH
Brú yfir Afréttisá austan Múlakvíslar er til lítils nýt eins …
Brú yfir Afréttisá austan Múlakvíslar er til lítils nýt eins og er. mynd/Marc Audreno
mynd/Eric Langlois
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert