Undirbúningur vegna smíði bráðabrigðabrúar yfir Múlakvísl gengur vel. Á staðinn eru komnir 40 rafmagnsstaurar sem bíða þess að verða reknir niður. Samkvæmt áætlun verður hafist handa við niðurreksturinn í kvöld og unnið sleitulaust við það verk alla nóttina og áfram þar til allir eru komnir á sinn stað. Hluti annars efnis í brúna er einnig komið að brúarstæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Nú er reiknað með að brúargerðin gæti tekið styttri tíma en fyrst var áætlað svo framarlega sem vel gengur og ekkert óvænt komi upp á. Þannig að vonast er til að bráðabrigðabrúin verði tilbúin upp úr miðri næstu viku eða undir þá helgi.
Fólk og bílar hafa verið ferjuð yfir Múlakvísl frá því síðdegis í dag með aðstoð björgunarsveita og verður svo áfram næstu daga. Reynslan mun skera úr um þörfina og hvernig gengur að sinna henni en búast má við nokkurri bið sérstaklega við að ferja bíla yfir.